Markhópur: 7.-8. bekkur.
Lykilorð: Endurnýjanleg orka, raforka, vatnsafl, jarðvarmi, vindorka, hálendi.
Lengd: 5 kennslustundir.
Höfundur: Brynja Stefánsdóttir.
Verklegt/vettvangsferð: Nei.
Samantekt
Rafmagn er eitthvað sem við í nútímasamfélagi getum ekki verið án. Mikilvægt er að nemendur átti sig á hvar það rafmagn sem þeir notast við er framleitt og hvað þarf til. Umræðan í samfélaginu seinustu ár hefur snúið að því hvort virkjanir séu álitlegar og hversu margar þurfi í raun og veru til að halda uppi svo fámennri þjóð. Náttúruauðlindir okkar eru margar en mikilvægi þeirra felst ekki einungis í nýtingu þeirra. Ferðamenn hafa lagt land undir fót til að sjá margslungna náttúru okkar og berum við ábyrgð á því að viðhalda henni og vernda hana. Þetta verkefni veitir nemendum tækifæri til að setja sig í spor hagsmunaaðila er koma að virkjanamálum. Þeir þurfa að setja sig inn í heim náttúruverndarsinna auk þeirra sem búa í nálægð við virkjanir. Gagnrýnin hugsun og rökræddar málsvarnir gera þeim kleift að taka ábyrgð á orðum sínum. Verkefnið hefur það að markmiði að gera nemendur meðvitaða um land og þjóð og áhrif virkjana á land og þjóð.
Verkefnið í fullri lengd: Vefsíða Word PDF Fylgiskjöl: Fylgiskjal 1 Fylgiskjal 2
Pingback: Deilt um orkuna – Verkefnið í fullri lengd | Náttúruvísindi á nýrri öld - NaNO